Berjabombu póteinís – Ninja creami uppskrift og gjafaleikur
Ég verð að viðurkenna að ég var mjög skeptísk á Ninja creami og var þess vegna mjög sein að hoppa á þennan vagn. Ég hélt einhvernveginn að ég gæti bara fengið nákvæmlega sömu útkomu með blandara. Núna þegar ég hef prófað verð ég að segja að þetta er bara ekkert líkt þeim ís sem ég hef verið að gera með blandara. Útkoman er svo miklu mýkri, ísinn meira frosinn og þéttur í sér.
Það er hægt að gera svo mikið hollari ís heima með Ninja creami. Maður notar einfalega Örnu+ próteindrykkina sem grunn og setur það sem maður vill út í.
Í þennan ís setti ég jarðaberja Örnu+ fyrir prótein og bragð. Mangó og jarðaber fyrir bragð. Döðlur og banana fyrir sætu. Svo til að fá áferðina ennþá rjómakenndari þá setti ég Haustjógúrtið með aðalbláberjunum en það er með einstaklega rjómkennda áferð.
Þessu blandar maður saman fyrst í blandara og hellir svo í Ninja creami glas. Best er að frysta blönduna í a.m.k. 24 klst til að fá alveg gegnum frosinn ís sem helst frosinn eftir blöndun. Svo setur maður glasið í Ninja creami vélina og stillir á light ice cream. Eftir fyrsta “spin” er gott að taka hníf og renna honum meðfram glasinu til að losa um ísnálarnar sem myndast upp við glasið. Svo setur maður glasið aftur í vélina og ýtir á respin þar til maður er kominn með silki mjúka og dásamlega góða áferð á ísinn, mig minnir að ég hefi þurft að gera respinn 3x en þið metið það sjálf hvað þið viljið gera oft.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Ninja Creami vél sem Linda notar í uppskriftina er frá Heimilistæki.
100 g frosið mangó
100 g frosin jarðaber
2 döðlur
1/2 banani (má vera svolítið vel þroskaður)
100 g haustjógúrt með aðalbláberjum frá Örnu Mjólkurvörum
300 ml Arna+ próteindrykkur með jarðaberjabragði frá Örnu Mjólkurvörum