Heimagerður Stacciatella ís í Ninja creami ísvélinni.
Mjúkur, rjómalagaður og ótrúlega einfaldur Stracciatella-ís sem minnir á klassískan ítalskan ís en hann er gerður úr Stracciatella grískri jógúrt frá Arna Mjólkurvörur í Ninja Creami.
Með viðbættu próteini er þessi ís næringarríkari en venjulegur ís.
Þessi ís er fullkominn sem eftirréttur eða ljúffengt snarl.
Þessi uppskrift er frekar stór og er hentug fyrir 2 manneskjur. Það er má líka frysta afganginn aftur og respinna seinna.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben
Innihaldsefni
360 g Stracciatella grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
1 dl rjómi
1 skeið vanillu prótein (má skipta út fyrir 1/4 tsk vanilludropa og 1 msk hlynsíróp)
30-50 g dökkt súkkulaði
Aðferð
Setjið Stracciatella grísk jógúrt, rjóma og vanillu prótein í Ninja creami glas og hrærið öllu vel saman. Setjið lokið á glasið og setjið í frysti a.m.k. í 1 sólarhring.
Takið lokið af og setjið í ísvélarglasið og hnífinn á. Stillið á light icecream stillinguna. Skafið meðfram hliðunum vel til að fjarlægja allar ísnálarnar sem liggja upp við glasið.
Skerið dökkt súkkulaði í bita og bætið því út í ísinn. Lokið glasinu og stillið á respin. Það var nóg fyrir mig að ýta aðeins einu sinni á resin en þið endurtakið eins oft og þarf til að ná ísnum mjúkum og góðum.
Berið fram með meira súkkulaði ef ykkur finnst þurfa.