Ef þú elskar tiramisu en vilt ferskari og sumarlegri útgáfu þá verður þú að prófa þetta hindberja tiramisu 😍✨
Lady finger kökurnar draga í sig sætsúran hindberjasafann og verða ótrúlega mjúkar og bragðgóðar, á meðan kremið er létt, silkimjúkt og með ferskum keim af hindberjum og sítrónu. Gríska jógúrtið með hindberja og sítrónubragði frá Örnu Mjólkurvörum gerir eftirréttinn extra ferskan og sumarlegan og passar fullkomlega með hindberjunum og sítrónuberkinum 🍋
Gríska jógúrtið með hindberjum og sítrónu frá Örnu er árstíðabundin vara sem þýðir að hún er aðeins til núna í sumar í takmarkan tíma.
Þetta er svona eftirréttur sem lítur út fyrir að hafa tekið mikla vinnu en er í raun ótrúlega einfaldur að gera. Fullkomið í saumaklúbbinn, sumarveisluna eða þegar mann langar í eitthvað léttara en samt decadent og ómótstæðilega gott ✨
Og svo er hann líka bara svo fallegur á borðinu með öllum fersku hindberjunum ofan á
Uppskriftir og myndir frá Lindu Ben
125 g Lady Finger kexkökur
500 g frosin hindber
500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
360 g Arna grískt jógúrt með hindber og sítróna – suðræn sumarútgáfa (2 dollur)
1 ½ dl flórsykur
250 g fersk hindber
Börkur af 1 sítrónu