Hátíðar grísk jógúrt beyglur

Innihaldsefni

400 g hveiti

4 tsk lyftiduft

1 tsk salt

540 g Arna grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum – hátíðar útgáfa með bökuðum eplum og kanil

1 dl rúsínur (má sleppa)

1 tsk kanill

1 egg (til að pensla á beyglur)

Hafrar (til að setja ofan á beyglur, má sleppa eða skipta út fyrir annað)

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfirhita.
  2. Setjið hveiti, lyftiduft, kanil og salt í skál, hrærið saman.
  3. Setjið gríska jógúrtið út í og blandið saman. Ef deigið er mjög blautt þá megiði setja örlítið meira af hveiti. Blandið rúsínunum saman við.
  4. Skiptið deiginu í 8 jafna hluta, rúllið hverjum hluta í kúlu, gerið gat í miðjuna og togið deigið út svo það verði í laginu eins og beygla. Leggið á smjörpappírsklædda ofnplötu, 4 beyglur á hverja plötu þar sem þær stækka mikið í ofninum.
  5. Hrærið saman egg í skál og penslið á beyglurnar, dreifið höfrum yfir.
  6. Bakið í 22 – 25 mín eða þar til þær eru orðnar gullibrúnar.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook
Arna ehf.

456-5600
arna@arna.is
VSK Númer. 85774

Framleiðsla og aðalskrifstofur
Hafnargötu 80, 415 Bolungarvík

Sala og dreifing
Tunguhálsi 6, 110 Reykjavík

Póstlisti

Með því að skrá þig á póstlistann okkar færðu sendar
nýjustu uppskriftir og aðrar gagnlegar tilkynningar frá Örnu.

Allur réttur áskilinn @ 2023