Haustið er á leiðinni í verslanir

Haustjógúrtin frá Örnu er væntanleg í verslanir eftir helgi. Jógúrtin er silkimjúk grísk jógúrt, bragðbætt með íslenskum aðalbláberjum sem eru handtínd í fjallshlíðunum hér fyrir vestan.

Haustjógúrtin var fyrst framleidd árið 2015 þegar sú hugmynd kviknaði að nýta íslensk aðalbláber í jógúrt. Við fengum heimafólk til liðs við okkur við að tína ber og gerðum fyrstu prufurnar af grískri jógúrt með aðalbláberjum. Útkoman vakti strax mikla lukku og viðtökurnar fóru fram úr væntingum.

Haustið eftir auglýstum við eftir fleira fólki til að tína fyrir okkur ber svo hægt væri að framleiða meira magn. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og síðan þá hefur Haustjógúrtin verið fastur liður hjá okkur á þessum árstíma.

Það er alltaf jafn ánægjulegt að sjá hversu vel henni er tekið þegar hún snýr aftur í verslanir á haustin. Við erum afar þakklát öllum þeim sem hafa lagt okkur lið við berjatínsluna í gegnum árin – og ekki síður þeim sem hafa tekið Haustjógúrtinni svona vel.

Haustjógúrtin verður fáanleg í takmörkuðu magni svo það er um að gera að næla sér í krukku.