Stundum er það einfaldasta sem er langbest. Þessi AB-mjólkurskál er fullkomin blanda af ferskleika og sætu. Köld, mjúk jógúrt á móti heitum, smjörsteiktum bönunum sem eru létt karamelluseraðir með kanil og hlynsírópi.
Sætir karamelluseraðir bananar, smá salt og hlý krydd gera ótrúlega mikið fyrir skálina og kemur með þetta eftirréttavibe, þó skálin sé ótrúlega næringarrík og góður morgunmatur eða millimál. Hnetusmjörið bætir svo við dýpt og fyllingu á meðan granóla gefur stökkleika sem bindur allt saman.
Þetta er svona skál sem tekur aðeins nokkrar mínútur að gera en líður eins og þú sért að dekra við þig. Fullkomin byrjun á deginum eða þegar þig langar í eitthvað fljótlegt, hollt og ótrúlega gott.