Extra djúsí enchiladas í hvítri sósu

Extra djúsí enchiladas í hvítri sósu

Ef þú elskar enchiladas sem eru extra djúsí, creamy og bragðmiklar, þá er þessi réttur algjörlega málið. Mjúkar vefjur fylltar með kjúklingi, osti og svörtum baunum, baðaðar í silkimjúkri hvítri sósu og toppaðar með bráðnum osti, þetta er svona réttur sem hverfur á augabragði af borðinu.

Hvíta sósan, gerð með sýrðum rjóma frá Örnu Mjólkurvörum, heldur enchiladainu ótrúlega djúsí og gerir réttinn bæði mildan og algjörlega ómótstæðilegan. Fullkominn fjölskylduréttur, helgarmatur eða einfaldlega þegar þú vilt comfort food sem klikkar ekki.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben

Innihaldsefni

3 stk kjúklingabringur

1 msk taco kryddblanda

400 g svartar baunir

200 g rifinn mozzarella

1 msk taco kryddblanda

6 vefjur

40 g smjör

30 g hveiti

500 ml vatn

3 tsk kjúklingakraftur

180 g sýrður rjómi frá Örnu Mjólkurvörum

Salt

15 g ferskt kóríander

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita. Kryddið kjúklingabringurnar og setjið í eldfastmót. Bakið inn í ofni í u.þ..b. 25 mín eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Skerið svo niður í litla bita og setjið í skál.
  2. Skolið svörtu baunirnar og setjið ofan í skálina með kjúklingnum ásamt 100 g af rifnum osti og taco kryddblöndu.
  3. Skiptið kjúklingablöndunni niður á 6 vefjur, rúllið vefjunum upp og raðið í eldfast mót.
  4. Bræðið smjör í potti og bætið hveiti út á, hrærið þar til smjörbolla hefur myndast. Hellið 100 ml af vatni út á pottinn í einu og hrærið á milli þar til orðið kekklaust, endurtakið þar til 500 ml af vatni eru komin út í og mjúk kekklaus sósa hefur myndast. Slökkvið á hitanum undir pottinum.
  5. Setjið kjúklingakraftinn út í og hrærið, hellið sýrða rjómanum út í og bætið við meira salti eftir smekk. Hrærið öllu saman.
  6. Hellið sósunni yfir upprúlluðu vefjurnar í eldfasta mótinu og dreifið rifum osti yfir.
  7. Bakið inn í ofni í 20 mín eða þar til osturinn hefur bráðnað og byrjaður að gyllast.
  8. Skerið niður kóríander og dreifið því yfir.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook