Próteinríkt grískt jógúrt kökudeig

Ef þig langar í eitthvað sem er sjúklega gott sem er samt hollt og fullt af próteini, þá þarftu að prófa þetta!

Þetta próteinríka gríska jógúrtkökudeig er mjúkt og algjörlega ómótstæðilegt, en á sama tíma næringarríkt og mettandi. Fullkomið sem hollari „treat“ eða þegar þig langar í eitthvað sætt án þess að fara í sykurspíral.

Í hverjum 100 g eru um 18 g af próteini, sem er ótrúlega gott miðað við að þetta bragðast eins og hrátt kökudeig með súkkulaðidropum 😮‍💨🍫

Próteinið kemur bæði úr grísku jógúrtinni og vanillupróteininu, ásamt möndlumjölinu sem gefur bæði góða áferð og auka prótein.

Þetta er einföld, hröð og næringarrík uppskrift sem klárast hættulega fljótt

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

3 dl létt grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum

2 msk hnetusmjör

60 g vanilluprótein

200 g möndlumjöl

100 g dökkir súkkulaðidropar

Aðferð

1.Setjið gríska jógúrtið, hnetusmjörið, vanillupróteinið og möndlumjöl í skál og blandið öllu vel saman.
2.Bætið súkkulaðidropunum saman við og njótið.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook