Smjörsteiktar döðlur með grísku jógúrti

Smjörsteiktar döðlur með grísku jógúrti er eitthvað sem þú verður að smakka þar sem ég er viss um að þú átt eftir að elska þetta!

Döðlurnar verða eitthvað annað góðar við smjörsteikinguna, þær verða eins og mest djúsí karamella sem þú hefur smakkað.

Ef þú vilt taka grísku jógúrt skálina þína upp á annað stig þá er þetta eitthvað sem þú verður að smakka.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

6 ferskar döðlur

30 g smjör

180 g grísk jógúrt með kararmellu og perum frá Örnu Mjólkurvörum

1 msk pistasíuhnetur

Aðferð

  1. Setjið smjörið á pönnu og bræðið það.
  2. Steinhreinsið döðlurnar og opnið þær þannig að þær verða flatar, setjið á pönnuna og steikið á báðum hliðum í nokkrar mín.
  3. Skerið pistasíuhenturnar niður.
  4. Setjið gríska jógúrt í skál og setjið döðlurnar út á ásamt söxuðu pistasíuhnetunum.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook