Sumarleg skyrterta með berjatoppi

Kakan er létt, fersk og ótrúlega bragðgóð. Mér finnst hún fullkomið mótvægi við þungu rjóma og súkkulaðitertunum og því læt ég þessa ekki vanta á veisluborðin.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

180 g hafrakex

30 g smjör

200 g rjómi

400 g vanillu skyr

150 g flórsykur

5 matarlímsblöð

Hindber

Jarðaber

Bláber

Aðferð

  1. Bræðið smjörið og myljið kexið í matvinnsluvél. Blandið smjörinu saman við kexið.
  2. Smyrjið 20 cm smelluforms hring (ekki botninn) og klæðið með smjörpappír. Setjið smelluformshringinn í miðjuna á kökudisk og þrýstið kexblöndunni ofan á diskinn, setjið í frystinn á meðan kakan er græjuð.
  3. Þeytið rjómann og blandið vanilluskyri saman við ásamt flórsykri.
  4. Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn þar til þau eru orðin mjúk (sækjið botninn í frystinn á meðan). Setjið þau þá í lítinn pott og bræðið þau við vægan hita. Hellið líminu út í skyr deigið og blandið strax saman við.
    Hellið yfir kexbotninn og sléttið úr deiginu. Setjið inn í fyrsti í u.þ.b. 3-4 klst eða lengur.
  5. Skreytið kökuna með berjum og jafnvel blómum ef þið viljið (muna að taka óæt blóm af kökunni áður en hún er borðuð.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook