Holl, ljúffeng og einföld uppskrift af bleikum höfrum yfir nótt. Þessi grautur er stútfullur af hollri og góðri næringu sem gefur þér góða orku út í daginn. Uppskriftin og myndir eru frá Jönu.
Innihaldsefni
½ frosinn banani
½ frosinn eða ferskur kúrbítur flysjaður
1 og 1/2 bolli frosin jarðarber
2 msk gojiber
1/2 epli
1 msk chiafræ
1 msk rauðrófusafi
1 tsk möndlusmjör
1 msk Feel Iceland kollagen duft
1 ½ – 2 bollar af Örnu jarðarberjajógúrt með ab gerlum
1 bolli haframjöl
Aðferð
Blandið öllu nema haframjölinu í góðum blandara.
Skiptið svo niður í 2 skálar eða krukkur.
Setjið 1/2 bolla af haframjöli og helming af bleika boostinu í ílát með loki í um 30 mín í ísskáp eða yfir nótt. Toppið með einhverju gómsætu eins og til dæmis möndluflögum og gojiberjum