230 g rifinn mozzarella ostur frá Örnu Mjólkurvörum
Ferskt basil (má sleppa)
Aðferð
Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
Skerið laukinn og setjið hann á pönnu og steikið létt. Bætið nautahakkinu, rifnum hvítlauksrifum, smátt sneiddum gulrótum og sveppum á pönnuna og steikið þar til eldað í gegn.
Bætið kryddunum út á pönnuna.
Bætið pastasósunni og rjómanum á pönnuna, hrærið saman og látið malla í smá stund.
Rífið hvítlauksostinn út á pönnuna og látið malla þar til hann hefur bráðnað saman við.
Dreifið mozzarella yfir og bakið inn í ofni í u.þ.b. 15 mín eða þar til osturinn er byrjaður að gyllast.