Viltu bláa eða gula mjólk?

Á undanförnum mánuðum hafa vörurnar frá Örnu verið að taka breytingum í útliti, með það að markmiði að auðveldara sé að finna þær í hillum verslana.
Nú er það mjólkin sem er komin í nýjan búning.
Mjólk er vara sem allir þekkja og lengi hefur það verið einkennandi að nýmjólkin sé blá og léttmjólkin gul. En þetta er vissulega allt saman mjólk – með mismunandi fituprósentu.
Gula mjólkin er enn léttari valkosturinn og sú bláa fituríkari.
 
Ný leið, létt val.
Bara mjólk fyrir fólk, án laktósa.