Innköllun á Örnujógúrti

Arna innkallar vöruna Örnujógúrt með jarðarberjum og AB gerlum, best fyrir 13.11.26 vegna aðskotahlutar, plaststykki sem fannst í einni dós. 

Upplýsingar um vöruna: 
Vörumerki: Arna
Örnujógúrt með jarðarberjum og AB gerlum
200g dós
Best fyrir 13.11.26
Strikanúmer 5694230157044
Geymsluskilyrði: 0-4°C
Dreifing: Krónan, Bónus, Hagkaup, Prís, Nettó, Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin. 

Leiðbeiningar til neytenda:

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni í verslun gegn nýrri vöru eða fullri endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um innköllunina er hægt að fá hjá Örnu í síma 456-5600 eða í gegnum netfangið arnamaria@arna.is.