Arna ehf. í Bolungarvík innkallar og varar við neyslu á Arna+ próteindrykkjum með súkkulaðibragði, jarðaberjabragði og kaffibragði sem eru með „Best fyrir 15.04“ merkingu. Við gæðaeftirlit fyrirtækisins kom í ljós Bacillus cereus örvera sem getur valdið matareitrun.
Engar upplýsingar hafa borist um veikindi af völdum vörunnar.
Neytendum er bent á að neyta ekki vörunnar og geta þeir skilað henni gegn endurgreiðslu í þeirri verslun sem hún var keypt. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Örnu ehf. í síma 456 5600 eða á netfanginu arna@arna.is