Bláberjakaka með krönsí toppi og glassúr

Þessi mjúka bláberjakaka er algjört haustgúmmelaði 💜 Kakan er einstaklega mjúk og djúsí, með fullt af bláberjum, stökkum kanil- og púðursykurstoppi og ljúffengum rjómaglassúr.

Ég nota Lindu Ben vanillukökublönduna sem grunn (fæst í Krónunni og Bónus) og Arna gríska jógúrt með íslenskum aðalbláberjum (sem fæst í flest öllum matvöruverslunum) sem gerir kökuna einstaklega mjúka og gefur henni enn meira bláberjabragð. Krönsí toppurinn setur svo punktinn yfir i-ið og passar fullkomlega með mjúkri kökunni og sætum glassúrnum.

Dásamleg kaka með kaffinu á ljúfum haustdegi og svo falleg á borði með ferskum bláberjum og ætum blómum.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Ljúffeng vanillukaka – þurrefnablanda Lindu Ben

3 egg

1 ½ dl bragðlítil olía eða brætt smjör

170 g Arna grísk jógúrt – ljúffeng haustútgáfa með íslenskum aðalbláberjum

2 dl frosin bláber

 

Krönsí toppur

100 g mjúkt smjör

200 g púðursykur

100 g hveiti

1 tsk kanill

 

Rjóma glassúr

200 g flórsykur

2-4 msk rjómi

Fersk bláber sem skraut (ég skreytti líka með fjólum sem eru æt blóm)

 

 

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið vanillukökuþurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu og grísku jógúrtinni. Hrærið saman og setjið í smurt 20 × 30 cm form (eða álíka stórt). Athugið að deigið er frekar stíft.
    Dreifið frosnum bláberjum yfir deigið.
  3. Útbúið krönsí toppinn með því að setja mjúkt smjör, púðursykur, hveiti og kanil í skál og blanda öllu vel saman. Dreifið blöndunni jafnt yfir deigið með bláberjunum.
  4. Bakið í u.þ.b. 40–45 mín. Gott er að stinga prjóni í miðja kökuna til að kanna hvort hún sé tilbúin.
  5. Kælið kökuna að stofuhita, takið hana úr forminu og setjið á fallegan disk eða bakka með smjörpappír undir eins og ég gerði.
  6. Útbúið glassúr með því að setja flórsykur í skál og byrja á því að setja 2 msk rjóma og hræra saman. Setjið meira af rjóma þar til þið eruð komin með þá áferð á glassúrinn sem ykkur finnst góður. Dreifið glassúrnum yfir kökuna og skreytið með ferskum bláberjum.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook