Súkkulaði hafragrautur með Stracciatella grískri jógúrt

Næringarríkur og mettandi morgunmatur, einstaklega ljúffengur, próteinríkur og trefjaríkur, auk þess sem hann gefur jafna orku inn í daginn!
Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

Hráefni (2 skammtar)
1 bolli grófir hafrar
2 dl vatn
1 msk kakó
1/2 tsk kanil duft
1 msk akasíuhunang
örlítið salt

Topping:
1/2-1 dós Stracciatella grísk jógúrt frá Arna
1 tsk hampfræ
1 msk gæða súkkulaði

Aðferð

  1. Settu hafra, vatn, kakó, kanil og smá salt í pott.
  2. Sjóðið við meðalhita í um 5–7 mínútur, hrærið reglulega þar til grauturinn þykknar.
  3. Takið af hellu og hrærið akasíuhunangi saman við.
  4. Setjið grautinn í skál og toppið með Stracciatella grískri jógúrt, smá dökku súkkulaði og hampfræjum.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook