Hér höfum við einfalda og góða uppskrift af bólgueyðandi tropical smoothie úr eldhúsinu hennar Jönu, sem á heiðurinn af bæði uppskrift og myndum.
2 bollar af blönduðum frosnum ávöxtum:
Ananas
Papaya
Mangó
1/3 bolli avókadó
1/2 frosinn banani
1 msk kollagenduft
1 msk próteinduft
1 dós grísk jógúrt með vanillu og kókos
1 tsk gullkrydd
1/2 bolli vatn (má sleppa fyrir þykkari smoothie)
Nokkrir klakar
Öllum hráefnum blandað saman í góðum blandara.
Skreytið 2 glös með smá af grískri jógúrt.
Strákið örlitlu gullkryddi og hellið svo smoothie ofan í glösin.