Cappuccino skyrskál með granóla, jarðarberjum og súkkulaði

Skyrskálar hafa verið mjög vinsælar undanfarin misseri og skal engan undra. Þetta er bráðhollur, næringarríkur og fjölbreyttur matur sem hægt er að aðlaga að hverjum og einum. Þessi skyrskál á sér systur á vinsælum skyrbar og er sú skál líklega ein af mínum uppáhalds. Hún er svolítið fullorðins, með töluverðu magni af kaffi en þá er þetta auðvitað upplagður morgunverður ekki satt?

Uppskrift og myndir frá Völlu.

Innihaldsefni

Örnu vanilluskyr í botninn

Millilag:

1 lítill eða rúmlega hálfur frosinn banani

2 dl frosið mangó

1 dl frosinn ananas

2-3 ferskar döðlur

2 msk hnetusmjör

1 dl kalt sterkt kaffi

1 dl möndlumjólk

 

Ofan á:

Granóla

Fersk jarðarber

Súkkulaði, saxað

Karamellu kókosflögur

Hnetusmjör

Aðferð

  1. Setjið banana, mangó, ananas, döðlur, hnetusmjör, möndlumjólk og kaffi í matvinnsluvél eða kraftmikinn blandara. Endilega smakkið ykkur til, mögulega meira kaffi? Hnetusmjör? Möndlumjólk? Áferðin á að vera eins og þetta sé þykkur ís.
  2. Setjið skyr í botn á skál, millilag eftir smekk yfir og toppið með jarðarberjum, granóla, súkkulaði, karamellukókosflögum og hnetusmjöri.
  3. Njótið með enn meiru af góðu kaffi!

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook