Einfaldir pizzasnúðar

Hér höfum við ljúffenga pizzasnúða sem eru svo einfaldir og fljótlegir. Þeir henta vel til að smella í þegar tíminn er naumur og maður þarf að græja eitthvað mtaarmikið og gott ofan í liðið á örfáum mínútum.

Ég smelli stundum í þessa snúða þegar við erum á leiðinni í útilegu en þeir slá alltaf í gegn hjá krökkunum.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Útfletjanlegt pizzaeig

2-3 msk pizzasósa

200 g rifinn mozzarella

250 g nautahakk

1 msk taco kryddblanda

Aðferð

  1. Byrjað er á því að steikja hakkið á pönnu með taco kryddblöndu þar til það er eldað í gegn.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  3. Fletjið deigið út og setjið pizzasósu á það, næst rifinn ost og svo nautahakkið.
  4. Rúllið deiginu upp frá langaendanum. Skerið rúlluna svo í sneiðar þannig að hver sneið er u.þ.b. 2 cm þykkt. Raðið í eldfastmót og bakið í u.þ.b. 20-30 mín eða þar til þeir eru bakaðir í gegn.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook