Engifer og appelsínu smoothie

Ný uppskrift frá Lindu Ben, appelsínuguli, ónæmisstyrkjandi drykkurinn.

Hér höfum við alveg virkilega ljúffengan smoothie sem er einstaklega “creamy”, mildur og mjúkur með örlitlu kikki. Hann inniheldur hráefni sem eiga það sameiginlegt að styrkja ónæmiskerfið okkar svo sem jógúrt með ab-gerlum, c-vítamín ríka appelsínu og gulrætur, engifer og túrmerik. Það er einnig gott að setja örlítið af svörtum pipar en hann hjálpar meltingarfærunum okkar að taka upp túrmerikið.

Ég elska þykka smoothie-a og því set ég alltaf eins lítið vatn og ég kemst upp með, leyfi blandaranum að vinna smá aukavinnu. Ég mæli hinsvegar með að setja nokkra klaka út í til að fá drykkinn extra kaldann.

Innihaldsefni

1 appelsína
1 gulrót
1 cm engifer
1/4 tsk túrmerik
Örlítill svartur pipar
2 dl hreint jógúrt með ab-gerlum frá Örnu Mjólkurvörum
1/2 dl vatn (ef þér finnst þurfa, annars sleppiru vatninu)
Klakar

Aðferð

Öllu blandað saman í blandara.
Svo er bara að njóta!

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook