Hrekkjavökuhugmynd – köngulóarkökur

Þessar bollakökur eru sígildar, mjúk súkkulaðikaka með bragðgóðu smjörkremi. Þær eru ansi frábrugðnar Ljónshjartakökunum þar sem ég nota meðal annars AB mjólk frá Örnu í kökurnar en ég nota hana í mjög margar uppskriftir. Með henni verða kökur mýkri og lyfta sér betur.

Smjörkremið er vissulega hefðbundið en ég nota hér smjörlíki með smjörinu því þannig finnst mér það haldast betur og sprautast fallegar.

Köngulærnar eru gerðar úr svörtum fondant og virkilega einfaldar að gerð. Í raun eru þetta 4 bogar. Tveir stærri og tveir minni sem vísa á móti hvor öðrum. Svo er búkurinn bara minni og stærri kúla skeytt saman og mótuð.

Verði ykkur að góðu og gleðilega hrekkjavöku.

Uppskrift og myndir frá Völlu.

Innihaldsefni

1 bolli hveiti

1 bolli sykur

1/3 bolli kakó

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk salt

1 stórt egg

1/2 bolli ab mjólk frá Örnu

1/2 bolli jurtaolía

1 tsk vanilludropar

1 bolli heitt vatn

 

Kremið:

200g smjörlíki mjúkt

100g smjör mjúkt

500g flórsykur

2 tsk vanilludropar

1-2 msk msk rjómi frá Örnu

Appelsínugulur matarlitur, t.d. gellitur frá Wilton

 

Aðferð

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 175°C og taka fram bollakökubakka (úr málmi) og raðið í hann bollakökuformum.
  2. Setjið hveiti, sykur, kakó, salt, lyftiduft og matarsóda í skál og hrærið með písk.
  3. Bætið við eggi, ab mjólk, olíu, vanilludropum og heitu vatni saman við og hrærið þar til deigið er samlagað.
  4. Setjið í bollakökuformin til rúmlega hálfs. Bakið í 20-22 mín, fer eftir ofnum.
  5. Fyrir kremið, hrærið smjör og smjörlíki vel saman, bætið þá flórsykri, rjóma og vanilludropum saman við og þeytið vel þar til létt og ljóst. Bætið þá við matarlit og þeytið áfram.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook