Hunangssinnepssósa

Besta hunangssinnepssósan!

Þessa sósu geri ég a.m.k. 1x í viku og hef með allskonar mat. Hún á einhvernveginn alltaf vel við. Hvort sem það er sem dressing með kjúklingasalatinu, með grillmatnum, á samlokuna eða bara hvað sem er.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben

Innihaldsefni

2 msk grískt jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum

2 msk mæjónes

1 msk hunang

1 msk sterkt dijon sinnep

1 hvítlauksgeiiri

Safi úr 1 sítrónu

Salt og pipar

Aðferð

  1. Setjið grískt jógúrt og mæjónes í skál ásamt hunangi og sterku dijon sinnepi. Rífið hvítlaukinn út í og kreistið sítrónusafann líka yfir, hrærið öllu saman.
  2. Smakkið til með salti og pipar.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook