Jólatrémarengs með karamellukurli og karamellusósu
Jólatrémarengs með karamellukurli og karamellusósu.
Ef þú vilt slá í gegn í jólaboðinu þá er þessi jólatrésmarengs fyrir þig. Hann er mun einfaldari að gera en hann lítur út fyrir að vera, bara eins og venjuleg marengsterta, nema hærri.
Það virðist í fyrstu vera flókið að skera jólatrésmarengsinn niður í sneiðar, en maður einfaldlega notar kökuhníf og kökuspaða eins og vanalega. Maður byrjar á því að taka efstu hæðina af beint og setur á disk. Næst setur maður spaðann undir marengsbotninn og sker sér sneið.
1 líter rjómi frá Örnu mjólkurvörum + 100 ml í sósuna
200 g karamellukurl
200 rjómakaramellur
Aðferð
Setjið marengs í sprautupoka og sprautið sex misstóra hringi á bökunarpappír. Stærsti er 25 cm í þvermál og minnsti er 7 cm.
Bakið marengsinn í 50 mínútur við 140°C á blæstri.
Setjið rjómakaramellurnar og rjóma saman í pott og bræðið. Kælið blönduna.
Þeytið rjómann, blandið saman við hann karamellukurlinu.
Setjið stærsta botninn á kökudiskinn, setjið rjóma á botninn og karamellusósu. Setjið næst stærsta botninn ofan á og endurtakið fyrir alla botnana.Skreytið með slaufum.