Léttar, mjúkar og hollar pönnukökur

Erum við ekki öll að leitast eftir því að borða örlítið hollara? Viljastyrkurinn til þess að fórna góða “óholla” matnum er samt kannski ekki endilega alltaf í botni og því er nauðsynlegt að hafa eiga nokkrar uppskriftir sem bjóða upp á hollan mat sem smakkast samt eins og hefðbundinn.

Þessar hollu pönnukökur eru léttar, loftmiklar og mjúkar eins og akkurat eins og hefðbundnar. Þær innihalda mjög lítinn sykur (hægt sleppa alveg) en þær eru sættar með vanillu skyri, skyrið gefur þeim líka mýktina sem maður finnur.

Hægt er að toppa pönnukökurnar með hverju sem er. Á mínu heimili elskum við að setja smjör, ost og fersk ber á pönnukökurnar okkar en fáum okkur svo eina með sírópi og ferskum berjum í eftirrétt.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

2 1/3 dl hveiti

2 1/3 dl heilhveiti

4 tsk lyftiduft

¼ tsk salt

½ msk sykur

3,5 dl mjólk

2 egg

100 g vanilluskyr frá Örnu

Aðferð

  1. Blandið þurrefnunum fyrst saman í skál, bætið svo öllum öðrum innihaldsefnum í skálina og blandið saman.
  2. Notið dl mál til að mæla deig fyrir hverja pönnuköku og steikið á sitthvorri hliðinni þar til hún verður gullinbrún.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook