Matcha frosið prótein nammi

Matcha frosið prótein nammi, frábærir í orku og próteinríkur jógúrt börkur/ bitar til að eiga í frysti.
Uppskrift og myndir frá Jönu.

 

Innihaldsefni

400 ml karamellu & peru grísk jógúrt @arna

1 msk Kollagen duft (má sleppa)

1 tsp matcha duft

Toppað með söxuðum pistasíum

 

Aðferð

  1. Hrærið vel saman grísku jógúrtina, kollagen dufti og Matcha dufti.
  2. Dreifið úr blöndunni á bökunnarpappírs klætt bretti/disk sem passar í þinn frysti, dreifið svo pistasíunum og frystið í um 3-4 klukkustundir eða yfir nótt.
  3. Takið úr frysti og skerið í hæfilega bita, frystið í lokuðu boxi.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook