Mjúkar og flöffí smákökur með jarðarberjum og hvítu súkkulaði

Mjúkar og flöffí smákökur með jarðaberjum og hvítu súkkulaði. Ef þú elskar mjúkar smákökur þá máttu alls ekki láta þessar framhjá þér fara, þær eru algjörlega æðislegar!

Gríska jógúrtið með jarðaberjunum og vanillunni gerir þær svona ljoftmiklar og mjúkar, á sama tíma sem það gefur kökunum þetta dásamlega jarðaberjabragð.

Dásamlegar smákökur sem eru eflaust ólikar þeim sem þú hefur smakkað áður.

Uppskriftir og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

100 g mjúkt smjör

150 g sykur

1 msk síróp

1 egg

150 g grískt jógúrt með jarðaberjum og vanilu frá Örnu mjólkurvörum

250 g hveiti

1 tsk lyftiduft

½ tsk matarsódi

¼ tsk salt

150 g hvítt súkkulaði

Aðferð

  1. Þeytið saman smjör, sykur og síróp þar til létt og loftmikið, bætið egginu út í og hrærið.
  2. Setjið gríska jógúrtið út í blönduna og blandið saman við.
  3. Bætið hveitinu, lyftiduftinu, matarsóda og salti út í, hrærið saman.
  4. Bætið hvíta súkkulaðinu út í deigið og blandið saman.
  5. Setjið deigið í lokað ílát og geymið inn í ísskáp í 2-3 klst eða yfir nótt.
  6. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C og undir+yfir.
  7. Notið matskeið til að útbúa kúlur úr deiginu og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu, bakið inn í ofni í u.þ.b. 12 mín (tími fer eftir stærð kakanna), brúnirnar eiga að vera byrjaðar að brúnast en miðjan ennþá mjúk. Þegar kökurnar hafa verið inn í ofninum í 8 mín, takið þær þá úr ofninum og látið ofnplötuna falla á borðplötu kröftuglega, til þess að ná fletja kökurnar niður. Setjið svo aftur inn í ofn og klárið að baka kökurnar.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook