Ef þú elskar möndlu croissant þá verður þú að prófa þennan hafragraut! 🥐
Þessi dásamlega mjúki og rjómakenndi hafragrautur er innblásinn af klassísku möndlu croissanti og er alveg einstaklega góður. Grauturinn er bragðbættur með möndlumjöli og möndludropum og svo er grískri vanillujógúrt frá Örnu blandað saman við sem gefur honum silkimjúka og góða áferð.
Ofan á fer ljúffengt möndlukrem úr möndlusmjöri, hlynsírópi og möndludropum, ásamt meiri grískri vanillujógúrt og möndluflögum sem gefa gott kröns. Samsetningin minnir svo skemmtilega á möndlukróissant, en hér erum við komin með góðan og saðsaman morgunmat sem er einfalt að útbúa heima.
Ég nota mjólk og Örnu grísku vanillujógúrtina í uppskriftina sem er komið í svo flottar og skemmtilegar 1 líters umbúðir núna.
Þetta er fullkominn grautur fyrir kósý morgna þegar mann langar að gera aðeins extra vel við sig, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í eldhúsinu.
Þennan graut er upplagt að gera daginn áður og taka með í nesti daginn eftir. Það er líka vel hægt að meal preppa þennan graut og gera mikið magn af honum til að eiga nokkra daga fram í tímann. Ég myndi þá geyma grautinn sér, möndlukremið sér og setja allt saman samdægurs.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben
Hafragrautur
1 dl hafrar
2 ½ dl mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
1 tsk chia fræ
1 msk möndlumjöl
½ tsk möndludropar
1 skeið hreint eða vanilluprótein (má sleppa)
1 dl Arna grískt jógúrt með vanillu frá Örnu Mjólkurvörum
Möndlukrems toppur
1 msk möndlusmjör
1 tsk hlynsíróp
Skvetta af mjólk til að þynna (magn fer eftir þykkt möndlusmjörsins)
½ tsk möndludropar
Jógúrt toppur
1 msk möndluflögur
1 msk Arna grískt jógúrt með vanillu frá Örnu Mjólkurvörum