Ef það er ein uppskrift sem hefur verið hvað vinsælust hér á síðunni í gegnum árin þá eru það kanilsnúðarnir mínir, svo mér fannst tilvalið að taka gömlu góðu kanilsnúðauppskriftina mína og gera eitthvað aðeins öðruvísi úr henni. Úr varð þessi risastóri, mjúki kanilsnúður sem er bakaður eins og kaka og toppaður með silkimjúku rjómaostaglassúri 😍
Í deigið nota ég mjólkina frá Örnu sem er nú komin í glænýjar og einstaklega fallegar umbúðir. Samhliða nýja útlitinu hafa mjólkurtegundirnar fengið ný heiti – í stað nýmjólkur og léttmjólkur er nú einfaldlega Blá mjólk með 4% fitu og Gul mjólk með 1,5% fitu. Báðar eru án laktósa og framleiddar í Bolungarvík. Umbúðirnar eru litríkar og skýrar svo það er auðvelt að þekkja mjólkina í kælinum. 💙💛
Kanilsnúðakakan er gerð úr sama mjúka gerdeiginu og þið þekkið úr kanilsnúðunum mínum, með ríkulegri kanilfyllingu á milli laganna. Í stað þess að gera marga litla snúða er deiginu rúllað saman í einn stóran snúð sem verður ótrúlega fallegur þegar hann er skorinn. Rjómaostaglassúrið yfir toppar svo herlegheitin, þessi er algjört draumakaffimeðlæti.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben
Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostaglassúr
7 g þurrger
120 ml volgt vatn
120 ml volg gul eða blá mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
½ dl sykur
80 g brætt smjör/smjörlíki
1 tsk salt
1 egg
450 g hveiti
Fylling
120 g mjúkt smjör
2 dl sykur
2 msk kanill
Rjómaostaglassúr
50 g smjör
150 g flórsykur
½ tsk vanilludropar
100 g rjómaostur