Prótein súkkulaðifrappó

Ef þið elskið ískaffi og frappó þá eigið þið eftir að elska þessa próteinútgáfu! ☕️

Með því að frysta próteindrykkinn fæst ótrúlega þykkur og kremkenndur drykkur sem minnir á kaffihúsafrappó, en er um leið próteinríkur og inniheldur kreatín. Það eina sem þarf að gera er að blanda honum saman við kaffi og örlítið af hlynsírópi, einfaldara verður það varla.

Fullkominn drykkur þegar mig langar í eitthvað ískalt, gott og próteinríkt yfir daginn eða eftir æfingu.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Frosinn Arna 30 g prótein + 5 g kreatín – með súkkulaðibragði

1 bolli kaffi

1 msk hlynsíróp

Aðferð

  1. Fyrst er Örnu próteindrykkurinn settur í frysti í a.m.k. 8 tíma.
  2. Klippið fernuna til að ná drykknum úr fernunni og setjið í blandara með kaffi og hlynsírópi, blandið þar til orðið að drykk.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook