Kaffi og döðluhafrar

Kaffi & döðlu próteinríkir hafrar 🤎 virkilega góður trefjaríkur morgunverður 🤎 er með orku >kaffi & döðlum og próteinríkur > grísk jógúrt & kollagen.
Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

Hráefni (1 skammtur):

½ bolli haframjöl

1 espresso skot, (kælt)

½ bolli laktosafrí mjólk frá Arna

½ bolli laktosafrí grísk jógúrt með kaffi og sukkulaði bragði frá Arna

1 msk hörfræ

1 msk hampfræ

2–3 döðlur, smátt saxaðar

½ tsk vanilla

Klípa salt

Topping (valfrjálst en mælt með)

• Auka döðlubitar

• Hnetusmjör eða möndlur

• Kakónibbur, súkkulaðibitar eða kanill

Aðferð

1. Settu allt saman í skál eða krukku og hrærðu vel saman

2. Settu lok á og geymdu í ísskáp yfir nótt (minnst 4 klst).

4. Hrærið létt áður en þú borðar og bættu topping ofan á.

Fyrir meira prótein: bættu við 1 msk próteindufti. Ef þú vilt sætara: 1 tsk hlynsírópi eða akasíu hunangi.

Svo er bara að njóta !

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook