Rjómalöguð tómatsúpa

Einföld og ljúffeng rjómalöguð tómatsúpa frá henni Jönu okkar.

Innihaldsefni

2 msk ólífuolía
6 tómatar
Handfylli kirsuberjatómatar
1 rauðlaukur
2 hvítlauksrif
Salt & pipar
450 ml tomato pasata (Tomatsafi)
Handfylli basil
1 selleristöngull saxaður smátt
2 msk tómat púrra
500 ml grænmetiskraftur
300 ml laktósalaus rjómi frá Arna

Aðferð

  1. Fersku tómatarnir og laukur skorið gróft, ólífuolía, hvítlaukur, salt og pipar sett inn i ofn og grillað á 180 gráður í 25- 30 mín
  2. Þegar grænmetið er grillað og tilbúið, kælið smá og setjið þá ásamt rest í blandara og blandið þar til allt er orðið silkimjúkt
  3. Hellið í pott og hitið upp.
  4. Toppið gjarnan súpuna með basil, mér finnt svo geggjað að hafa ferskt súrdeigsbrauð og pestó með

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook