Þessi rjómalagaða tortellinisúpa er dásamlegur haustmatur. Hlý, matarmikil og stútfull af góðu bragði. Í henni er nautahakk, tortellini, sæt kartafla og spínat í bragðmikilli tómat- og rjómasúpu sem verður silkimjúk og ótrúlega góð.
Rjóminn frá Örnu Mjólkurvörum gerir súpuna einstaklega mjúka og rjómakennda og passar svo vel með tómötunum og kryddunum. Þetta er einn af þessum einföldu réttum sem hægt er að elda í einum potti og bera fram fyrir alla fjölskylduna 😍
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
500 g nautahakk
1 tsk hvítlaukskrydd
1 tsk paprikukrydd
1 tsk oregaó
Salt og pipar
¼ tsk chilí flögur
2-3 hvítlauksgeirar
1 sæt kartafla
400 g passata
1 l vatn
250 g Tortellini
500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
50 g Baby leaf eða spínat
1 tsk nautakraftur