Hér höfum við girnilega uppskrift af trefjaríkum jarðarberjakökum með hvítu súkkulaði. Í uppskriftina notar Jana nýju árstíðarbundnu jógúrtuna okkar sem er bragðbætt með íslenskum jarðarberjum.
1 krukka íslensk jógúrt með íslenskum jarðarberjum
Annað lag:
1 bolli frosin jarðarber
1/4 bolli chiafræ
1 msk fljótandi sæta eins og akasíuhunang eða hlynsíróp
Þriðja lag:
100g hvítt súkkulaði
Aðferð
Takið bollakökuform (mér finnst sílíkon form virka best fyrir þessa uppskrift) og setjið eina matskeið af jarðaberjajógúrt í botninn í hverju formi. Frystið meðan þið búið til lag númer 2.
Látið jarðaberin þiðna og stappið þau svo vel, hellið chiafræjum og sætu og hrærið vel saman. Hellið yfir frosnu jarðaberjajógúrtina, 1. lagið.
Frystið.
Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið yfir lag númer 2.
Setjið í frysti yfir nótt.
Gott að taka út 5-10 mínútur út úr frysti áður en þið ætlið að njóta