Heimagerður plokkfiskur frá grunni

Heimagerður plokkfiskur frá grunni sem allir elska. Þetta er ódýrt og einfaldur matur sem flest öllum finnist góður, bæði börn og fullorðnir.

Það er upplagt að nota afgangs fisk í að gera pl0kkfisk. Krakkarnir mínir elska plokkfisk og borða sjaldan jafn vel og þegar plokkfiskur er í matinn.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

700 g soðin ýsa

500 g soðnar kart­öfl­ur, flysjaðar

½ lauk­ur flysjaður og saxaður mjög smátt

80 g smjör

70 g hveiti

6 dl nýmjólk frá Örnu Mjólkurvörum

Salt og pip­ar eftir smekk

Rúgbrauð (má sleppa)

Salatblanda (má sleppa)

Aðferð

  1. Skerið laukinn smátt niður.
  2. Setjið smjörið á pönnuna og bræðið það, bætið lauknum út á pönnuna og steikið þar til mjúkur í gegn. Bætið hveitinu út á pönnuna og blandiðð öllu vel saman þar til smjörið og hveitið hefur myndað bollu.
  3. Bætið mjólkinni út á pönnuna, 1 dl í einu og hrærið vel á milli þar til blandan verður kekklaus.
  4. Skerið fiskinn og kartöflurar smátt niður og bætið út á pönnuna, hrærið öllu vel saman.
    Kryddið til með salti og pipar.

    Berið plokkfiskinn fram með rúgbrauði með smjöri og fersku salati.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook