Óshlíðin

Óshlíðin er hlíðin sem liggur á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals og var lengi vel eina akstursleiðin til Bolungarvíkur, þar til Bolungarvíkurgöng leystu veginn af hólmi árið 2010. Síðan göngin voru tekin í gagnið hefur Óshlíðin verið mikið notuð sem útivistarsvæði en malbikaður vegurinn bíður upp á frábæra hjóla- og hlaupaleið sem er fær allt sumarið. Vegfarendur þurfa þó að sýna aðgát þar sem að mikið grjóthrun er úr hlíðinni fyrir ofan og vegurinn hefur látið á sjá vegna ágangs sjávar. Óshlíðin er virkilega skemmtilegur áfangastaður á björtum sumarkvöldum en sólsetrið sést óvíða betur en frá Óshlíðinni.

Teikning: Berglind Halla Elíasdóttir

mjolk lettmjolk 2025 800px

Gula mjólkin

Léttmjólkin okkar er leikandi létt á því, fitusnauð (1,5% fita) og með viðbættu D vítamíni. Hún er án laktósa og fer því vel í alla mallakúta.
Léttmjólkin er fáanleg í 1L fernum.

Innihald
Léttmjólk
, fitusprengd og gerilsneydd, laktósafrítt mjólkurprótein, laktasi. 

Mjólkursykurinn hefur verið klofinn með hvata.

Kælivara: Geymist í kæli við 0-4°C

Nettóþyngd: 1 L.

Næringargildi í 100 g:

Orka 168 kJ / 40 kkal
Fita1,5 g
Þar af mettuð fita 0,9 g
Kolvetni3,2 g
Þar af sykurtegundir 3,2 g
Prótein 3,5 g
Salt0,10 g
NV*
D-vítamín1,0 μg20%
B12 vítamín0,37 mg 15%
B2 vítamín 0,16 mg 11%
Kalk114 mg14%
Fosfór95 mg14%
Joð11,2 mg8%

*Hlutfall af næringarviðmiðunargildum.

Tengdar vörur