Byrjið á því að útbúa krönsí toppinn með því að bræða smjör og bæta út í það hveiti, sykri og kanil. Hræra saman og leyfa því að stirna á meðan kökurnar eru útbúnar.
Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur þar til létt og ljóst, bætið þá út í eggjunum, eitt í einu og þeytið vel á milli. Blandið vanilludropunum saman við.
Í aðra skál blandið saman hveiti, lyftidufti og salti, bætið því út í eggjablönduna ásamt súrmjólk og hrærið saman þar til samlagað.
Takið stór pappírs muffinsform og raðið í muffins álbakka, fyllið hvert form upp 2/3.
Hrærið saman sykur og kanil, setjið 1/2 tsk af kanilsykri ofan í miðjuna á hverri köku. Myljið krönsí toppinn yfir bollakökurnar og bakið inn í miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 20 mín eða þar til þær eru bakaðar í gegn.
Blandið saman flórsykri og vatni í skál, (þið gætuð þurft að setja örlítið meira af vatni eða flórsykri til þess að fá áferðina þykkfljótandi), dreifið yfir kökurnar.