Appelsínu og pistasíu hafrar

Appelsínu og pistasíu hafrar. Ótrúlega ferskur og góður morgunmatur, uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

1 bolli haframjöl

3/4 ​​bolli mjólk að eigin vali

1/2 bolli peru & vanillujógúrt frá Arna

1/2 bolli pistasíuhnetur, gróft saxaðar (auk smá meira til að skreyta)

2 msk nýkreistur appelsínusafi (um 1/2 appelsína)

1 msk hunang

Klípa af sjávarsalti

Aðferð

  1. Blandið öllu hráefninu saman í skál (fyrir utan appelsínubörkinn).
  2. Setjið í tvö glös og toppið með meira af 1/2 bolla af auka peru & vanillu jógúrt, og smá appelsínu berki, setjið lok á og geymið í kæli í nokkrar mínútur eða yfir nótt.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook