Berja smoothie skál

Dásamleg berja smoothie skál, stútfull af góðri næringu.
Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

1 dós jarðaberja jógúrt Arna

1 bolli frosin bláber

1/2 bolli frosin brómber (má skipta út fyrir frosin blönduð ber)

1/2 bolli frosin krækiber (má skipta út fyrir frosin blönduð ber)

1 pera skorin í bita

2 msk hempfræ

1 msk prótein, kollagenduft ( má sleppa)

Aðferð

  1. Allt sett í blandara og blandað vel saman
  2. Hellt í skál og toppað með því sem hugurinn girnist eins og góðu granóla og ristuðum kókosflögum

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook