Bláberja og acai skyr búðingur

Þessi bláberja og acai skyr búðingur er stútfullur af góðri næringu. Algjör prótein, trefja og vítamín bomba.

Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

1 bolli möndlumjólk

2 msk chia fræ

1 tsk Acai duft

1 msk Feel Iceland collagen duft

1/2 dolla laktósafrítt bláberjaskyr frá Arna

Aðferð

  1. Hræra saman og látið standa í ísskáp í nokkra tíma eða yfir nótt
  2. Setjið búðinginn í fallegt glas
  3. Toppið svo með restinni af bláberja skyrinu ofaná, ásamt frosnum bláberjum og hempfræjum

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook