Þorskhnakkar með mexíkósku ívafi

Hér höfum við svakalega góða þorskhnakka sem eru bakaðir í bragðmiklu maíssalsa og hvítlaukshryddosti. Þessi réttur er algjör bragðsprengja og einstaklega djúsí.

Hugmyndin af þessum rétti vaknaði þegar ég smellti í annan rétt um daginn. Ég er svo búin að vera prófa mig áfram með þessa hugmynd undanfarið og hef núna fullkomnað þennan rétt.

Það er gott að bera þorskhnakkana fram t.d. með hrísgrjónum og kaldri hvítlaukssósu.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

1 kg þorskhnakkar

1 dl hveiti

1 tsk pipar

1 tsk salt

1 egg

1 msk mexíkósk kryddblanda

U.þ.b. 2-3 msk smjör

1 shallot laukur

4-5 hvítlauksrif

300 g maísbaunir

1 ferskur jalapenó

300 g kirsuberja tómatar

75 g kryddostur með hvítlauk frá Örnu Mjólkurvörum

Ferskt kóríander

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið þorskhnakkana þannig að hver biti er u.þ.b. 13 cm á lengd.
  3. Setjið hveiti, pipar, salt og mexíkóska kryddblöndu í skál, blandið saman.
  4. Setjið eggið í aðra skál og hrærið það saman. Veltið þorskhnökkunum fyrst upp úr egginu og svo hveitiblöndunni, steikið þá svo upp úr smjöri á báðum hliðum.
  5. Saxið laukinn, hvæitlaukinn og jalapenóinn og steikið á pönnu upp úr svolitlu smjöri, bætið maísbaununum út á og tómötunum. Hellið svo blöndunni yfir þorskinn. Rífið hvítlauksostinn yfir og bakið inn í ofni þar til osturinn hefur bráðnað.
  6. Rifið ferskt kóríander yfir eftir að rétturinn er kominn út úr ofninum.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook