Einföld grilluð pizza í steypujárnspönnu

Það er svo einfalt að grilla sér pizzu í steypujárns pönnu. Það eina sem þarf að gera er að hafa grillið vel heitt og halda því sem mest lokuðu á meðan verið er að grilla svo hitinn leiki um alla pizzuna, ekki bara botninn.

Pizzu botninn verður stökkari þegar pizzur eru grillar í steypujárns pönnum og það verður allt einhvernveginn miklu meira djúsí.

Rifnu ostarnir frá Örnu eru frábærir á pizzur, þeir teygjast vel og bráðna æðislega. Hægt er að breyta til og nota rifinn ost blandað saman við rifinn piparost til að fá svolítið meira “kick” í pizzuna.

Ég toppaði svo þessa pizzu með hvítlauks kryddosti. Ég elska kryddostana frá Örnu því þeir eru að sjálfsögðu mjög bragðgóðir og mér finnst þeir bráðna betur en aðrir kryddostar, svo finnst mér umbúðirnar frábærar, ég alveg elska að það sé hægt að loka þeim aftur.

Uppskrift og myndir eru frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Steypujárnspanna
Ólífuolía
Pizzadeig, keypt tilbúið eða heimagert
Pizzasósa
Rifinn mozzarella frá Örnu
Skinka
Pepperóní
Sveppir
Rauð paprika
Hvítlauks kryddostur frá Örnu

Aðferð

1.Kveikið á grillinu og stillið á háan hita

2.Setjið u.þ.b. 1 msk ólífu olía á pönnuna, fletjið úr pizzadeigið þannig að það er passi ofan í pönnuna, það er gott að hafa það þykkara við endana.

3.Setjið sósuna á deigið og því næst vel af rifnum osti. Skerið áleggið niður og dreifið því yfir. Skerið hvítlauksostinn í bita og raðið yfir. Grillið á grillinu þar til pizzan er bökuð í gegn, osturinn bráðnar og pizzan er byrjuð að brúnast fallega (tími mismunandi eftir grillum og hitanum á grillinu).

4.Setjið hvitlauks eða chilli olíu yfir kantana, takið pizzuna af pönnunni áður en þið skerið hana í sneiðar.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook