Matcha Mangó chia búðingur

Próteinríkur, trefjaríkur og einstaklega ferskur búðingur sem hentar vel í morgunmat, millimál eða sem hollur. eftirréttur.

Af hverju þessi búðingur er góður

Mangó gefur C-vítamín og náttúrulega sætu.

Matcha er ríkt af andoxunarefnum og gefur mjúka, jafnari orku.

Chia-fræ eru trefjarík og innihalda omega-3 fitusýrur sem stuðla að góðri mettun.

Létt grísk jógúrt er próteinrík og hjálpar til við að halda blóðsykri stöðugri og mettun lengur.

Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

Fyrir 1–2 skammta

200 g létt grísk jógúrt frá Arna

1 tsk matcha-duft

2–3 msk chia-gel*

75 gr frosið mangó (látið þiðna örlítið)

1–2 tsk akasíuhunang

*Chia-gel

1 dl chia-fræ

5 dl sjóðandi vatn

Aðferð

Búðingurinn:

  1. Settu grísku jógúrtina, matcha-duftið, chia-gelið, mangóið og akasíuhunangið í skál.
  2. Hrærið vel saman þar til blandan verður silkimjúk og kremkennd.
  3. Settu í glas eða skál og láttu standa í 10–15 mínútur ef þú vilt þéttari áferð.
  4. Toppaðu með nokkrum mangóbitum og örlitlu akasíuhunangi rétt áður en borið er fram.

Chia gel

  1. Settu chia-fræin í skál eða krukku.
  2. Helltu sjóðandi vatninu yfir og hrærðu strax mjög vel í 1–2 mínútur til að koma í veg fyrir kekki.
  3. Láttu standa í um 10 mínútur og hrærðu aftur.
  4. Þegar gelið hefur kólnað skaltu loka krukkunni og geyma í ísskáp.

Geymsla: Chia-gelið endist yfirleitt í 5–7 daga í vel lokaðri krukku í ísskáp

Hlutfall sem er gott að muna

  • 1 hluti chia-fræ : 5 hlutar vatn

Þá færðu þykkt en mjúkt gel sem er fullkomið í chia-búðinga, smoothie, hafragraut eða til að hræra út í jógúrt.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook