Kaffi, súkkulaði & banana overnight hafrar

Dásamleg útgáfa af overnight höfrum með kaffiskyri með kaffi&vanillubragði sem enginn má láta framhjá sér fara.

Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

1 dós kaffi og vanilluskyr frá Arna

1/2 bolli hafrar

1/2 banani stappaður

1 msk chiafræ

1 msk valhnetur, saxaðar

1/2 tsk kanill

1/4 tsk vanillu

2-3 msk mjólk að eigin vali

1/2 Banani sneiddur, til að skreyta

Smá dökkt súkkulaði

Aðferð

  1. Setjið skyr, hafra, 1/2 banana stappaðan, chiafræ, valhnetur, kanil, vanillu og mjólk í skál og hrærið vel saman.
  2. Bræðið smá súkkulaði yfir vatnsbaði.
  3. Setjið skyr og hafrablönduna í glas, skerið restinga af banananum og skreytið glasið, hellið brædda súkkulaðinu yfir og geymið í ísskáp yfir nótt.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook