Kraftmikið kjúklingasalat

Hér höfum við æðislega gott og orkumikið kjúklingasalat sem er alveg stútfullt af hollustu.

Maður byrjar á því að elda sætu kartöflurnar og sveppina, svo sker maður restina af innihaldsefnunum niður og blandar öllu saman í skál. Kryddar svo með chillí olíu (eða annari olíu ef maður fýlar ekki sterkt), salti og pipar og smá meira af þurrkuðu chillí ef vill.

Þetta er alveg virkilega fljótlegur réttur og bráðhollt, alveg eins og við viljum hafa hlutina 👌🏻

Uppskrift og myndir eru frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

3 foreldaðar kjúklingabringur

1-2 forsoðnar rauðrófur

1/2 sæt kartafla (eða ein lítil)

75 g klettasalat

2 dl bláber

100 g sveppir

1 msk sólblómafræ

100 g rifinn mozzarella frá Örnu Mjólkurvörum

U.þ.b. 2 msk chillí olía (eða önnur ólífu olía ef þið viljið ekki hafa salatið sterkt, líka hægt að setja 1 msk chillí og 1 msk venjuleg olía)

Salt og pipar

Þurrkað chillí eftir smekk

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið sætukartöfluna og sveppina í bita, setjið á smjörpappírsklædda ofnplötu, setjið olíu og salt&pipar yfir. Bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kartöflurnar og sveppirnir eru mjúkir í gegn.
  3. Skerið kjúklingabringurnar og rauðrófuna niður í bita.
  4. Setjið sætu kartöflurnar, sveppina, kjúklingabringurnar, rauðrófuna, klettasalatið, bláberin, sólblómafræin og rifna mozzarellann í skál. Hellið chillí olíu yfir, kryddið með salti, pipar og chillí flögum (sleppið ef þið viljið ekki hafa salatið sterkt), blandið öllu vel saman og setjið í skálar.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook