Matcha hindberjahafrar yfir nótt, fullkominn morgunmatur sem þú getur útbúið og átt tilbúið í ísskápnum til að grípa að morgni eða millimál.
Uppskrift og myndir frá Jönu.
Innihaldsefni
50 g af höfrum
1/4 -1/2 tsk matcha
100 ml mjólk að eigin vali
1 msk hlynsíróp
2 msk af grísk jogurt frá Arna karamellu & peru + auka til að toppa
50 gr frosin hindber
Aðferð
Blandið saman höfrum, matcha dufti, mjólk, hlynsírópi og grískri jógúrt og setjið til hliðar.
Hitið frosin hindberin í pott á meðan og eldið við meðalhita og stappið hindberin með gaffli eða skeið.
Hellið matcha-höfrunum í krukku og bætið hindberja “sultunni” ofan á og meiri grískri jógúrt. Látið liggja í ísskápnum yfir nótt og bætið ristuðum kókosflögum og njótiði.