Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi

Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi bornar fram með kartöflu smælki og fersku salati. Ekta haustmatur af einföldustu og bestu sort.

Bæði kjúklingurinn og kartöflurnar taka u.þ.b. 40 mín í ofninum, kartöflurnar þó örlítið styttri tíma mögulega, þannig það er mjög sniðugt að smella kjúklingnum fyrst inn í ofn og kartöflunum svo í beinu framhaldi.

Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.

Innihaldsefni

Ostafylltar kjúklingabringur í rjómalegi

4 Kjúklingabringur

1 kryddostur með pipar frá Örnu Mjólkurvörum

Rósmarín og timjan krydd

8 sneiðar Serrano skinka

2-3 dl rjómi

1 tsk kjúklingakraftur

Ferskt rósmarín

 

Kartöflusmælki:

400 g litlar kartöflur með hýði

2-3 msk ólífu olía

Salt og pipar

Rósmarín krydd

Timjan krydd

Aðferð

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
  2. Þar sem þykkasti hluti bringanna er, stingið hníf inn í endann og myndið vasa fyrir ostsneiðar, eins djúpar og hægt er án þess að gera gat.
  3. Skerið ostinn í u.þ.b. 0,5 cm þykkar sneiðar og setjið inn í “vasann” á kjúklingabringunum. Kryddið með rósmarín og timjan og vefjið svo 2 stk serrano skinku utan um hverja bringu. Raðið í eldfast mót og bakið inn í ofni í 20 mín.
  4. Þegar 20 mín eru liðnar, hellið rjómanum út á mótið og blandið saman kjúklingakrafti saman við. Bakið áfram í 20 mín.
  5. Takið út úr ofninum og kryddið (og skreytið) með fersku rósmarín.
  6. Hreinsið kartöflurnar vel undir köldu vatni og nuddið öll óhreinindi sem gætu leynst af. Skerið þær niður í 4 hluta hvor. Raðið í eldfast mót.
  7. Hellið olíu yfir og kryddið eftir smekk, blandið öllu vel saman.
  8. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-40 mín.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook