Próteinríkt súkkulaðijógúrt nammi

Próteinríkt súkkulaðijógúrt nammi
Eitthvað sem allir geta gert og tekur stuttan tíma.

Uppskrift og myndir frá Jönu.

Innihaldsefni

 1 bolli (laktósalaus) grísk jógúrt 

 2 – 3 matskeiðar ósykrað kakóduft

 1 matskeið hlynsýróp / hunang eða nokkrir dropar af stevíu

1 tak vanilla

Aðferð

  1. Hrærið vel saman í skál.
  2. Fletjið svo út á bökunnarpappír sem er á platta/bretti sem passar inn í frysti hjá þér – toppaðu með því sem hugurinn girnist.
  3. Hér toppaði ég með pekanhnetum, þurrkuðum trönuberjum og ristuðum kókosflögum sem var passar einstaklega vel saman.
  4. Frystið í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook