Sítrónu og vanillu kaka

Dásamleg sítrónu og vanillukaka frá Jönu.

Innihaldsefni

Kaka: 

2 egg 

2 dl hrásykur

2 tsk lyftiduft

2 dl spelt eða hveiti

1 dl laktósalaus Ab – mjólk með vanillu 

1 msk sítrónusafi

1 tsk vanilla

 

Krem:

100 g mjúkt smjör

200 g flórsykur

1 msk sítrónusafi

Smá sítrónubörkur

1 msk laktósalaus rjómi frá Arna

40 g hvítt sítrónu súkkulaði smátt saxað 

Þeytið saman smjör og flórsykur í 2 – 3 mínútur og bætið svo 
sítrónusafanum, sítrónuberki og rjóma 

Aðferð

  1. Kaka>
    Stillið ofninn á 180°C (blástur)
  2. Þeytið saman egg og hrásykur þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Því næst er restin sett í og hrært létt saman
  4. Setjið deigið í smurt form og bakið við 180°C í 25-30 mínútur.
  5. Kælið kökuna vel áður en þið setjið á þá krem
  6. Smyrjið kremið á kökuna og dreifið svo hvítu súkkulaðinu yfir

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook