Súkkulaði kanillengja

Innihaldsefni

7 g þurrger

250 ml volg mjólk

½ dl sykur

80 g brætt smjör

1 tsk salt

1 egg

470 g hveiti

 

Fylling:

120 g mjúkt smjör

2 dl sykur

1 msk kanill

30 g súkkulaði, brætt

Aðferð

  1. Byrjað er á að setja volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrært smá til að þurrgerið blotni.
  2. Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
  3. Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir, og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina. Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
  4. Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
  5. Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
  6. Blandið saman mjúku smjöri, sykri og kanil í skál, bræðið súkkulaðið og hellið því út í blönduna, þeytið vel saman. Smyrjið fyllingunni yfir allt deigið.
  7. Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju. Takið lenguna og brjótið hana saman þannig að endarnir snúi í sömu átt, vefjið rúllunni saman nokkra vafninga.
  8. Leggjið smjörpappír í kökuform sem er u.þ.b. 10×25 cm, leggjið svo kanillengjuna þar ofan í. Setjið viskastykki yfir og leyfið lengjunni að hefast aftur í 30 mín.
  9. Stillið ofninn á 170°C og undir og yfir hita.
  10. Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín eða þangað til lengjan er orðin fallega gullinbrún á litinn og nokkuð stíf í viðkomu sé ýtt á hana.

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift á Facebook
Arna ehf.

456-5600
arna@arna.is
VSK Númer. 85774

Framleiðsla og aðalskrifstofur
Hafnargötu 80, 415 Bolungarvík

Sala og dreifing
Tunguhálsi 6, 110 Reykjavík

Póstlisti

Með því að skrá þig á póstlistann okkar færðu sendar
nýjustu uppskriftir og aðrar gagnlegar tilkynningar frá Örnu.

Vörumerki Örnu:

Allur réttur áskilinn @ 2023